Fréttir | 12. mars 2019 - kl. 09:25
Galdranámskeið á Blönduósi og Skagaströnd

Helgina 23.-24. mars ætlar Einar Mikael að halda nýtt og spennandi galdranámskeið á Blönduósi og Skagaströnd fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Í samtali við Húnahornið segist Einar Mikael hafa sérhæft sig í mismunandi töfranámskeiðum fyrir börn síðastliðinn átt ár og nú sé Galdraskólinn að opna aftur eftir þriggja ára hlé. „Ég hef kennt yfir 12 þúsund krökkum töfrabrögð á Íslandi. Börn sem voru feimnir, óöruggir og með lítið sjálfstraust hafa tekið gríðarlegum breytingum eftir töfranámskeiðin mín,“ segir Einari Mikael og hlakkar hann til að koma í Húnaþing.

Einar segir að á námskeiðinu læri börnin ótrúlega galdra og magnaðar sjónhverfingar. Þau fái innsýn inní hinn dularfulla heim töframanna. „Þau læra undirstöðuatriði í töfrabrögðum, einfalda og skemmtilega spilagaldra, hugsanalestur og sjónhverfingar. Námskeiðið veitir börnunum aukið sjálfstraust, styrkir mannleg samskipti og þau læra að gera ótrúlega hluti,“ segir Einar Mikael.

Í lok námskeiðsins setja börnin upp sýningu ásamt Einari Mikael þar sem þau sýna afrakstur námskeiðsins. Allt Galdradót er innifalið.

Viðburðirnir á Facebook: 

Blönduós
https://www.facebook.com/events/428298731310717/

Skagaströnd
https://www.facebook.com/events/391108891713735/

Staðsetning: Ömmukaffi Blönduósi
Dagssetning: Helgarnámskeið 23. og 24. mars
Tími: 13:00 til kl. 14:30 tvö skipti
Aldur: 6 til 12 ára
Verð: 6.000 kr. allt námskeiðsefni innifalið

Staðsetning: Fellsborg Skagaströnd
Dagssetning: Helgarnámskeið 23. og 24. mars
Tími: 11:00 til kl. 12:30 tvö skipti
Aldur: 6 til 12 ára
Verð: 6.000 kr. allt námskeiðsefni innifalið  

Hægt er að skrá sig með því að senda póst á galdranamskeid@gmail.com með nafni og aldri greiða þarf fyrir námskeiðið fyrir fyrsta tíma.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga