Rannveig Lena og Jóhannes fh. Ámundakinnar innsigla kaupsamninginn.
Kristján Jónasson fh. KPMG og Jóhannes handsala leigusamninginn.
Nýir staðarhaldarar á Húnabraut13, Jóhannes frá Ámundakinn og Kristján og Þorsteinn Þorsteinsson, ættaður frá Geithömrum, frá KPMG.
Fréttir | 12. mars 2019 - kl. 11:00
Nýlega var undirritaður kaupsamningur milli Húnabókhalds ehf. og Ámundakinnar ehf. um kaup þess síðarnefnda á húsnæði Húnabókhalds á Húnabraut 13, Blönduósi. Um er að ræða 167 fermetra skrifstofurými með tilheyrandi starfsmannaaðstöðu, sem var afhent nýjum eiganda þann 1. mars síðastliðinn, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ámundakinn.
Þá tók jafnframt gildi leigusamningur, þar sem KPMG ehf. leigir þetta húsnæði til langs tíma af Ámundakinn.
Í tilkynningunni segir að gjörningur þessi komi til í kjölfar þess að Rannveig Lena Gísladóttir, eigandi Húnabókhalds ehf. seldi KPMG ehf. rekstur og innbú Húnabókhalds og var samningur þess efnis undirritaður í lok febrúar og KPMG tók við rekstrinum þann 1. mars síðastliðinn.
„Húnabókhald hefur um árabil verið öflugt og vaxandi bókhaldsfyrirtæki sem hefur byggst upp hér á Blönduósi og þjónað einstaklingum og fyrirtækjum, fyrst og fremst á Húnaflóasvæðinu. Fastráðnir starfsmenn eru 5 og býðst þeim öllum áframhaldandi vinna hjá nýjum eigendum.
Kaupin á húsnæðinu og leiga eru í samræmi við þá meginstefnu Ámundakinnar, um að efla og treysta atvinnulíf á starfssvæði félagsins, með því að bjóða fyrirtækjum hagstæða vist í húsnæði félagsins.
Hér skulu eigendum og starfsfólki Húnabókhalds færðar þakkir fyrir góða þjónustu á undarförnum árum. Þá er ánægjulegt að KPMG ehf. sjái sér hag í að hasla sér völl hér á svæðinu og bjóðum við þá velkomna,“ segir í tilkynningu frá Ámundakinn.