Tilkynningar | 14. mars 2019 - kl. 11:15
Súpukvöld Soroptimistaklúbbsins Við Húnaflóa í kvöld
Tilkynning frá stjórn

Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa stendur fyrir súpu- og skemmtikvöldi fimmtudaginn 14. mars kl. 19:30 í matsal Blönduskóla á Blönduósi. Fyrirlesari kvöldsins er Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og ritstjóri tímaritsins Húsfreyjunnar.

Kristín Linda hefur brennandi áhuga á að nýta nýjustu þekkingu og rannsóknir til að hjálpa fólki að stýra eigin lífi, hugsun og hegðun á jákvæðan hátt og öðlast þannig meiri hamingju og betri heilsu.

Í boði verður ljúffeng súpa, brauð, kaffisopi og áhugaverður fyrirlestur. Aðgangur kr. 2.500. Við tökum fagnandi á móti öllum gestum.

Markmið súpukvöldanna er að bjóða upp á fræðandi fyrirlestra sem hægt er að tengja markmiðum Soroptimista. Klúbburinn Við Húnaflóa hefur árlega staðið fyrir sjálfstyrkingarnámskeiðum fyrir ungar stúlkur í sýslunum. Súpukvöldin eru hluti af fjáröflun fyrir það verkefni.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga