Frá Skagaströnd. Ljósm: skagastrond.is
Fréttir | 15. mars 2019 - kl. 15:37
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á vef sínum eftir flokkstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og er reynsla af sambærilegum störfum kostur. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast hér eða á skrifstofu sveitarfélagsins og er umsóknarfrestur til 25. apríl 2019.
Þá er þess getið á vef Skagastrandar að umsóknarfrestur vegna sumarstarfa námsmanna verði auglýstur síðar.
Nánari upplýsingar veitir Árni Geir í síma 861 4267 en einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: sveitarstjori@skagastrond.is.