Fréttir | 16. mars 2019 - kl. 09:23
Framsagnarkeppni 7. bekkjar Blönduskóla

Hin árlega framsagnarkeppni 7. bekkjar í Blönduskóla fór fram á þriðjudaginn. Krakkarnir stóðu stig allir mjög vel en þau Unnur Borg Ólafsdóttir, Inga Rós Suska Hauksdóttir og Atli Þór Sindrason voru valin til þess að keppa fyrir hönd Blönduskóla í framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi sem haldin verður miðvikudaginn 20. mars klukkan 14 í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Dómarar í keppninni voru þau sömu og undanfarin ár, þau Guðjón Ólafsson, Kolbrún Zophoníasdóttir og Kristín Guðjónsdóttir. Sagt er frá þessu á vef Blönduskóla, þaðan sem meðfylgjandi myndir eru fengnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga