Tilkynningar | 18. mars 2019 - kl. 11:55
Viltu starfa við liðveislu?
Tilkynning

Félags- og skólaþjónusta A-Hún leitar eftir áhugasömum einstaklingum til að starfa við liðveislu. Liðveisla er veitt einstaklingum til að rjúfa félagslega einangrun og/eða til að styðja við sjálfstæði þeirra. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi verkefni sem reyna á frumkvæði og aðlögunarhæfni liðveitenda. Umsókn um að starfa við liðveislu skal senda til félagsmálastjóra, Ásdísar Ýr Arnardóttur, á netfangið asdis@felahun.is. Ekki er sótt um á sérstökum eyðublöðum. Ekki er um að ræða sérstakan umsóknarfrest.

Nánari upplýsingar veitir Ásdís Ýr Arnardóttir, félagsmálstjóri, í síma 863-5013 eða í tölvupósti asdis@felahun.is og Sigrún Líndal, iðjuþjálfi/ráðgjafi, í síma 844-5013 eða í tölvupósti sigrun@felahun.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga