Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:11 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:11 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:11 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:11 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:11 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:11 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti í síðustu viku að leita umsagnar á sameiginlegri skipulagslýsingu frá 6. mars síðastliðinn sem unnin var af Teiknistofu Norðurlands. Skipulagslýsingin er annars vegar fyrir nýtt deiliskipulag fyrir skólasvæði Hvammstanga og hins vegar breytingu á deiliskipulagi austan Norðurbrautar sem er í samræmi við nýtt deiliskipulag.
Í breytingu á deiliskipulagi austan Norðurbrautar falla skilmálar um lóð íþróttamiðstöðvar og grunnskóla úr gildi. Þá verður breyting á syðri skipulagsmörkum og skipulagssvæðið minnkar um 3,2 ha í samræmi við nýtt deiliskipulag skólasvæðisins á Hvammstanga sem tekur yfir hluta svæðisins.
Fyrirhugað deiliskipulag fyrir skólasvæði er um 5 ha að stærð, þar er grunnskóli Húnaþings vestra, íþróttamiðstöð, Hvammstangakirkja, leikskólinn Ásgarður, kvenfélagsgarðurinn Bjarkarás og opið útivistarsvæði við Syðri-Hvammsá.
Skipulagslýsingin sem er sett fram í greinargerð verður til sýnis í Ráðhúsi Húnaþings vestra og á heimasíðu sveitarfélagsins á þessari slóð: https://www.hunathing.is/is/thjonusta/skipulags-og-byggingarmal/skipulagsmal-i-auglysingu frá 19. mars til og með 9. apríl 2019.
Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar við skipulagslýsinguna og skal þeim skilað skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is fyrir 9 apríl n.k.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |