Félagsheimilið Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Félagsheimilið Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 21. mars 2019 - kl. 10:24
Upplýsinga- og umræðufundur fyrir eldri borgara í Húnaþingi vestra

Í dag verður haldinn upplýsinga- og umræðufundur fyrir eldri borgara (60+) og aðstandendur, í Félagsheimilinu á Hvammstanga klukkan 17-19. Á dagskrá er kynning um þjónustu fyrir eldri borgara í Húnaþingi vestra og kynningar frá Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum, Félagi eldri borgara og Heimsóknarvinum. Þá verður erindi um geðheilsurækt á efri árum.

Dagskrá:

Kynningar um þjónustu fyrir eldri borgara í Húnþingi vestra

Kynningar frá Tryggingastofnun og Sjúkratryggingum Íslands, Félagi eldri borgara og Heimsóknarvinum

Hlé, boðið upp á molakaffi, ýmis hjálpartæki verða til sýnis

Erindi um geðheilsurækt á efri árum, Sofia Krantz, sálfræðingur

Fyrirspurnir og umræður

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga