Fréttir | 21. mars 2019 - kl. 10:53
Skráning hafin í Arctic Coast Way

Opnað hefur verið fyrir skráningu fyrirtækja í Arctic Coast Way/Norðurstrandarleið. Ferðamannaleiðin verður formlega opnuð 8. júní næstkomandi á Degi hafsins. Arctic Coast Way er spennandi nýtt verkefni í ferðaþjónustu sem á að skapa nýtt aðdráttarafl á Norðurlandi og kynna landshlutann sem einstakan áfangastað.

Ferðamannavegir eru þekktir í ferðaþjónustu víða um heim, sem tæki til þess að beina ferðamönnum eftir ákveðnum leiðum um skilgreind svæði. Norðurstrandarleið fer um alla strandlengjuna, frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri.

Til þess að taka þátt í verkefninu þurfa ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélög og þorpin eða bæirnir á leiðinni að uppfylla ákveðin skilyrði, sem byggjast meðal annars að miklu leyti á staðsetningu. Þá er grunnforsenda fyrir skráningu í ACW að viðkomandi fyrirtæki sé skráð í samstarf við Markaðsstofu Norðurlands. Hér má skoða þátttökuskilyrðin.

Á vef Markaðsstofu Norðurlands fá finna nánari upplýsingar sem og umsóknareyðublað.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga