Borðeyri. Ljósm: hunathing.is
Borðeyri. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 09. apríl 2019 - kl. 10:09
Ráðherra staðfestir tillögu um að hluti Borðeyrar verði verndarsvæði í byggð

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur staðfest tillögu sveitarstjórnar Húnaþings vestra um að hluti Borðeyrar verði verndarsvæði í byggð. Svæðið er tæplega einn og hálfur hektari og stendur á landspildu sem kallast Borðeyrartangi. Markmiðið með verndarsvæðinu er að viðhalda og styrkja byggð á Borðeyri með þeim hætti að söguleg arfleifð kaupstaðarins fái notið sín og gildi hennar undirstrikað gagnvart heimamönnum jafnt sem aðkomufólki en þó ekki síst gagnvart komandi kynslóðum.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti 19. maí 2018 að hluti Borðeyrar yrði verndarsvæði í byggð vegna menningarsögulegs gildis og ásýndar svo auðveldara yrði að vernda séreinkenni byggðakjarnans í komandi skipulagsvinnu. Í lok maí sama ár óskaði sveitarfélagið eftir staðfestingu mennta- og menningarmálaráðherra eins og kveðið er á um í lögum að þurfti að gera. Nú tíu mánuðum seinna hefur staðfesting loksins borist en í síðustu viku harmaði byggðarráð Húnaþings vestra vinnubrögð ráðherra varðandi seinaganginn og hvatti hann til að klára málið sem fyrst.

Í fundargerð byggðarráðs frá því í gær er staðfestingu ráðherra fagnað vegna menningarsögulegs gildis og ásýndar verslunarstaðarins á Borðeyri. „Staðfestingin mun vernda sérkenni byggðakjarnans í komandi skipulagsvinnu,“ segir í fundargerðinni.

Landsspilda á Borðeyrartanga
Svæðið sem um ræðir er 14.771 m2 á stærð eða tæplega 1,5 hektarar og stendur á landspildu sem kallast Borðeyrartangi. Mörk þessa svæðis ná frá læk sem fellur úr grónum gilskorningi sem kallast Lækjardalur að vestanverðu og meðfram sjólínunni á suðurhlið tangans frá þeim stað sem lækurinn fellur í víkina allt fram á eyraroddann í austri. Þaðan liggja mörkin meðfram sjóvarnargarði til norðvesturs þar til náð er beinni sjónlínu við brattan malarkamb rétt norðan við norðurgafl gamla sláturhússins. Þaðan ná mörkin í hallandi línu meðfram kambnum til vesturs að læknum.  

Tillagan er staðfest að fenginni umsögn Minjastofnunar Íslands sem meðal annars horfir til afmörkunar verndarsvæðis, og gagna sem liggja til grundvallar greinargerð sem fylgir tillögunni, þ.m.t. fornleifaskráningar, húsakönnunar, mats á varðveislugildi og skilmála um verndun og uppbyggingu innan marka verndarsvæðisins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga