Fréttir | 11. apríl 2019 - kl. 10:08
Fatasöfnun vegna komu flóttamanna frá Sýrlandi
Tilkynning frá Rauða krossinum Húnavatnssýsludeild

Vegna móttöku flóttamanna frá Sýrlandi vantar barnafatnað, skólatöskur, íþróttatöskur, íþróttafatnað og skófatnað fyrir eftirtalinn aldur. Stelpur 8, 10, 12 og 17 ára og strákar 2, 3, 7, 10, 11, 12. 13 og 14 ára.

Þá vantar fatnað á fullorðna í ýmsum stærðum. Fötin þurfa að vera heil og hrein. Tekið er á móti fatnaði fimmtudaginn 11. apríl milli kl. 18-22 að Húnabraut 13 (RKÍ húsinu) á Blönduósi. Þeir sem hafa ekki tök á að koma þá geta haft samband við Önnu Aspar í síma 868-0674.

Ef einhverjir eiga húsgögn sem þeir vilja gefa geta þeir sent myndir af þeim til Guðrúnar Margrétar Guðmundsdóttur, verkefnastjóra, á facebook messenger eða haft samband við hana í síma 695-9577.
Rauði krossinn Húnavatnssýsludeild.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga