Fréttir | 11. apríl 2019 - kl. 15:16
HSN fær 85 milljónir til að efla tækjakost

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið skiptingu rúmlega 420 milljóna króna af fjárlögum sem varið verður til að efla tækjakost heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar sem endurnýjunarþörf er orðin brýn. Á fjárlögum þessa árs eru samtals 421,8 milljónir króna ætlaðar til tækjakaupa hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Rúmur helmingur fjárins er föst fjárveiting en 200 milljónir króna er tímabundin fjárveiting ætluð til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði stofnananna.

Með þessu tímabundna framlagi er verið að bregðast við uppsafnaðri þörf fyrir úrbætur í þessum efnum, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.

Eftirfarandi eru upplýsingar um skiptingu fjárins sem úthlutað er með hliðsjón af þörf stofnananna og stærð þeirra.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands fær 70 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða fær 60 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 85 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Austurlands fær 85 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands fær 66,8 milljónir.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fær 55 milljónir.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga