Fréttir | 12. apríl 2019 - kl. 12:04
Páskabingó- og ball í Félagsheimilinu á Blönduósi

Laugardaginn 20. apríl fer fram hið árlega Páskabingó í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 14:00. Fullt af flottum páskaeggjum í verðlaun. Fyrsta spjald kostar 1.000 krónur og hvert spjald eftir það 500 krónur. Um kvöldið, klukkan 23:00, verður Páskaball í Félagsheimilinu. Ballhljómsveitin Bandamenn mæta í sannkölluðum páskagír og halda uppi stuðinu til klukkan 03:00. Miðaverð er 3.900 krónur og er aldurstakmark 18 ár.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga