Ljósm: skagastrond.is
Ljósm: skagastrond.is
Fréttir | 12. apríl 2019 - kl. 15:05
Körfuboltanámskeið á Skagaströnd

Körfuboltaskóli Norðurlands vestra heldur tvö körfuboltanámskeið á Skagaströnd á morgun, laugardaginn 13. apríl. Krakkar af öllu Norðurlandi er velkomnir. Klukkan 9-11 verður námskeið fyrir 3.-7. bekk, byrjendur og lengra komna og klukkan 11-13 verður námskeið fyrir 8.-10. bekk, byrjendur og lengra komna. Námskeiðsgjald er 2.500 krónur. UMF Fram á Skagaströnd niðurgreiðir þátttökugjald sinna félagsmanna um 1.000 krónur.

Skráning fer fram í gegnum Facebook síðu Körfuboltaskóla Norðurlands vestra eða á hfmkarfa@gmail.com en senda skal upplýsingar um nafn og aldur þátttakanda og hvort hann sé félagsmaður í UMF Fram.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga