Fréttir | 14. apríl 2019 - kl. 10:01
Laus störf í Blönduskóla næsta skólaár

Blönduskóli auglýsir eftir starfsfólki í fjórar stöður fyrir skólaárið 2019-2020. Auglýst er eftir deildarstjóra stoðþjónustu í fullt starf, forstöðumanni Skóladagheimilis og ritara, sem eru 60% störf, og auglýst er eftir þroskaþjálfa í 50-100% starf. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknum skal skilað í tölvupósti á netfangið blonduskoli@blonduskoli.is eða á skrifstofu skólastjóra fyrir 23. apríl 2019.

Nánari upplýsingar gefur Þuríður Þorláksdóttir, skólastjóri, í síma 452-4147 eða í tölvupósti á thuridur@blonduskoli.is.

Einnig má finna upplýsingar á heimasíðu skólans www.blonduskoli.is og hér má finna nánari upplýsingar um störfin.

Blönduskóli er framsækinn skóli í mikilli þróun með tæplega 150 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn leitast við að koma til móts við þarfir nemenda sinna á persónulegan og einstaklingsmiðaðan hátt. Gott samstarf er við nærsamfélagið svo sem íþróttafélögin og tónlistarskólann.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga