Nöldrið | 14. apríl 2019 - kl. 13:15
Menning kostar

Ekki er hægt að segja að margir hafi skrifað undir kröfuna um að svokölluð Húnavallaleið/Svínavatnsleið verði sett á samgönguáætlun. Þessi undirskriftasöfnun var í gangi í tæplega hálft ár og aðeins 577 lýstu vilja sínum á færslu þjóðvegarins fram hjá Blönduósi. Stytting leiðarinnar milli Reykjavíkur og Akureyrar væri 14 kílómetrar og framkvæmdin yrði fjármögnuð með veggjöldum. Enn er það sýslumaður vestur á fjörðum sem virðist haldinn einhverri þráhyggju fyrir því að koma þjóðvegi 1 fram hjá Blönduósi þrátt fyrir það að bæði Blönduósbær og Húnavatnshreppur hafa áður hafnað hugmyndum um þessa vegastyttingu og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hvatt önnur sveitarfélög að standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt heimamanna í skipulagsmálum sem varða þeirra nærumhverfi. Satt að segja tel ég að brýnni þörf sé fyrir fjármuni til annarra vegaframkvæmda út um allt land en þessa 14 kílómetra styttingu.

Það er hálfgerð hneisa ef flytja á Hafíssetrið burt af staðnum. Að vísu má segja að hafíssýningin hafi aldrei orðið það sem henni var ætlað að verða og hægt að kenna um bæði peninga- og metnaðarleysi. Það er ekki nóg að hengja upp spjöld með lesmáli og ljósmyndum og ætlast til að það laði að gesti. Þá hefur vantað stórlega upp á að ráða fólk til starfa við safnið sem hafði haldgóða þekkingu á því sem þar er fjallað um og sýnt. Á þeim sýningum  sem spretta upp um land allt, oftar en ekki tengt viðkomandi svæði, er nútímatæki nýtt á allan máta eins og t.d. á Landnámssetrinu í Borgarfirði, Eldheimum í Vestmannaeyjum, Lava centre á Hvolsvelli. Á þessa staði er upplifun að koma og þeir laða að ferðmenn sem vilja fræðast um svæðið.

Þá ætla grannar okkar í Skagafirðinum að stíga á vagninn af stórhug miklum og hyggjast opna sýndarveruleikasýningu í næsta mánuði þar sem gestir beinlínis ganga inn í Sturlungaöldina með gleraugum tækninnar. Staðsetning Hafísseturs var kjörin hér við  Húnaflóann, en ef ekki er vilji hér heimafyrir að færa safnið til nútímans og gera á því stórar endurbætur er það eflaust betur komið í Borgarnesi þar sem séð er um þessháttar menningarmál af metnaði og alúð. Munum að menning kostar peninga. Svo er spurning hvort Hillebrantshúsið á svo bara að standa autt og yfirgefið áfram.

Sumarið er á næsta leyti og páskarnir líka. Gleðilega páska og gleðilegt sumar, njótum frídaganna fram undan.

Kveðja frá Nöldra.

Höf. Nöldri

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga