Skagaströnd
Skagaströnd
Fréttir | 16. apríl 2019 - kl. 09:34
Þjóðskógur á Skagaströnd

Sveitarstjórn Skagastrandar vill gera samning við Skógræktina um að gróðursetja þjóðskóg á Skagaströnd. Markmiðið er að binda kolefni og veita skjól. Fyrirliggjandi verkþættir eru m.a. að afmarka svæði sem hægt er að nýta og setja fram ræktunar- og framkvæmdaáætlun í samvinnu við Skógræktina. Málið var rætt á fundi sveitarstjórnar í gær og var samþykkt að fela sveitarstjóra og oddvita að vinna í því áfram.

Á Íslandi er fjöldi þjóðskóga sem opnir eru almenningi og í sumum þeirra eru tjaldsvæði. Skógræktin á eða hefur í sinni vörslu ríflega fimmtíu lendur um allt land að undanskildum Vestfjörðum. Skógarnir sem þar vaxa eru kallaðir þjóðskógar. Þeir eru öllum opnir allan ársins hring. Margir skóganna eru í alfaraleið og því vel aðgengilegir. Aðrir eru úr alfaraleið og jafnvel gæti þurft að hossast í öflugum jeppa eða ganga upp bratta hlíð til að komast í þá. En alltaf er það fyrirhafnarinnar virði fyrir fólk sem kann að meta fallegt skóglendi.

Aðstaða í skógunum er mjög misjöfn. Skógarnir eru allt frá því að vera ósnertir villtir birkiskógar með engum stígum eða mannvirkjum upp í nytjaskóga í fullum rekstri og skóga með vel skipulögðu kerfi gönguleiða, fjölbreytilegum útivistarmöguleikum og jafnvel tjaldsvæðum, trjásöfnum, bálskýlum og annarri aðstöðu.

Hér má sjá helstu þjóðskóga landsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga