Fréttir | 16. apríl 2019 - kl. 12:26
Foreldrafélag Leikskólans Barnabæjar stendur fyrir sínum árlega kökubasar í Kjörbúðinni miðvikudaginn 17.apríl frá kl. 14:00 og stendur hann eins lengi og kökur og bakkelsi er fáanlegt.
Kökubasarinn er helsta fjáröflun foreldrafélagsins en félagið stendur m.a. að jólaballi leikskólans, sumarskemmtun, útskriftargjöfum, kaupum á leikföngum og mörgu öðru í starfi leikskólans.
Vonandi að sem flestir sjái sér fært um að líta við í Kjörbúðinni og styðja gott starf foreldrafélagsins og að grípa með sér bakkelsi fyrir páskana í leiðinni.