Ljósm: blonduos.is
Ljósm: blonduos.is
Fréttir | 16. apríl 2019 - kl. 10:48
Götur sópaðar á Blönduósi næstu daga

Götur á Blönduósi verða sópaðar á næstu dögum. Á vef Blönduósbæjar eru íbúar hvattir til þess að sópa og hreinsa í kringum sínar lóðir. Þá er bent á mikilvægi þess að ökutæki séu ekki geymd í götum þannig að hægt sé að hreinsa allar götur. Og úr því minnst er á götur, þá er ekki úr vegi að minna vegfarendur á að sýna árvekni og aka ætíð eftir aðstæðum en nú er sá árstími og það tíðarfar sem eykur hættuna á holumyndunum á þjóðvegum.

Hætta á holumyndunum í þessu tíðarfari
Þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda eða þegar miklir umhleypingar eru eykst hættan á því að holur myndist í bundnu slitlagi, malbiki og klæðingu. Það getur tekið skamman tíma fyrir holu að myndast, jafnvel djúpa holu sem getur leitt til tjóns. Vegfarendur er því beðnir að sýna sérstaka árvekni og aka ætíð eftir aðstæðum.

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að starfsmenn þjónustustöðva fylgist með eins og kostur er og bregðist við ábendingum um holur. Vegagerðin leitast við að bregðast við með viðgerð sem allra fyrst og tekur við ábendingum vegfarenda um holur. Til dæmis má senda upplýsingar á netfangið vegagerdin@vegagerdin.is og í síma 1777. Lendi vegfarandi í tjóni er rétt að fylla út tjónstilkynningu en hana má finna á vef Vegagerðarinnar.

Það er mikilvægt að sýna árvekni og vera vakandi fyrir því í umferðinni að holur geta myndast mjög hratt, þannig að þótt ekið sé á vegi sem var í góðu lagi í gær, getur verið komin hola í morgunsárið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga