Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 23. apríl 2019 - kl. 09:10
Fjórar sýrlenskar fjölskyldur til Blönduóss

Í næsta mánuði fjölgar íbúum Blönduósbæjar um 21 en þá er von á flóttafólki frá Sýrlandi. Fjórar fjölskyldur koma til Blönduóss, ein fjögra manna, ein fimm manna og tvær sex manna, þar af 12 börn og ein 17 ára stúlka. Blönduósbær vinnur nú að undirbúningi fyrir komu fólksins, s.s. að útvega því húsnæði, ráða verkefnastjóra og túlk.

Sveitarstjórn Blönduósbæjar samþykkti í febrúar síðastliðnum að taka á móti flóttafólki samkvæmt beiðni þar um frá félagsmálaráðuneytinu. Ákvörðunin var tekin eftir kynningarfund með ráðuneytinu fyrir sveitarstjórnarfólk og aðra hagsmunaaðila. Í kjölfarið var haldinn íbúafundur um málefnið og sótt hann liðlega 100 manns. Á fundinn mættu fulltrúar frá Rauða krossinum og fulltrúi úr félagsmálaráðuneytinu. Farið var yfir aðdraganda og stöðu mála og íbúum kynnt hvernig staðið yrði að móttöku fólksins.  

Rauði krossinn í Húnavatnssýslum boðaði svo í síðasta mánuði til fræðslufundar um menningu og sögu Sýrlands og átökin þar undanfarin ár og voru þeir sem áhuga höfðu á að gerast sjálfboðaliðar sérstaklega hvattur til að mæta. Og í þessum mánuði hélt Rauði krossinn námkseið fyrir sjálfboðaliðana um móttöku flóttafólksins þar sem farið var nánar ofan í viðfangsefni verkefnisins.

Blönduós hefur áður tekið á móti flóttafólki en það var fyrir um tuttugu árum síðan. Þá kom fólk sem var að flýja stríðsátök á Balkanskaga. Almennt er talið að bæjarbúa séu jákvæðir gagnvart því að taka á móti nýjum hópi nú.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga