Fréttir | 23. apríl 2019 - kl. 12:42
Sumarskemmtun Blönduskóla

Hin árlega sumarskemmtun Blönduskóla verður haldin sumardaginn fyrsta, 25. apríl, í Félagsheimilinu á Blönduósi. Nemendur í 1.-7. bekk sjá um öll skemmtiatriði undir leiðsögn kennara. Skemmtunin hefst klukkan 14:00. Aðgöngumiðinn kostar kr. 1.000. Ókeypis aðgangur er fyrir börn fædd 2006 (7. bekk) og yngri.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga