Fréttir | 10. maí 2019 - kl. 11:24
Staða skólastjóra Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu laus til umsóknar

Tónlistarskóli Austur-Húnavatnssýslu óskar eftir að ráða í stöðu skólastjóra. Í auglýsingu segir að skólastjóri þurfi að hafa menntun á sviði tónlistar og helst hafa reynslu og/eða menntun í stjórnun. Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg sem og leiðtogahæfni. Viðkomandi þarf að vera fær í mannlegum samskiptum, ástunda sjálfstæð vinnubrögð.

Skólinn hefur þrjár starfsstöðvar, á Skagaströnd, Blönduósi og Húnavöllum og eru nemendur skólans tæplega 90. Kennt er á öll helstu hljóðfæri og er mikið samstarf milli grunnskóla og tónlistarskóla. Stór hluti nemenda kemur á skólatíma í kennslustundir.

Umsóknarfrestur er til 1. júní nk. Skila skal umsóknum á skrifstofu Húnavatnshrepps, Húnavöllum, 541 Blönduós, eða með að senda umsókn í tölvupósti á netfangið einar@hunavatnshreppur.is.

Stefnt skal að því að viðkomandi hefji störf frá og með 1. ágúst 2019 eða eftir nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar: Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri í síma 452 4661 og 842 5800.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga