Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 11. maí 2019 - kl. 10:19
Lokað fyrir kalt vatn á Blönduósi

Í tilkynningu á vef Blönduósbæjar kemur fram að vegna viðhalds og tenginga í Mýrarbraut þarf að loka fyrir kalt vatn á hluta af veitusvæði Vatnsveitu Blönduóss, mánudaginn 13. maí næstkomandi frá klukkan 10:00 og fram yfir hádegi. Lokunin nær til Mýrarbrautar, Sunnubrautar, Smárabrautar, Skúlabrautar og hluta Húnabrautar.

Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Blönduósbæjar í síma 455 4700.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga