Fréttir | 13. maí 2019 - kl. 09:01
Fundu fíkniefni í sumarbústað

Lögreglan á Norðurlandi vestra fann um helgina fíkniefni í sumarbústað sem ungmenni höfðu tekið á leigu. Í tilkynningu segir að húsleit hafi verið framkvæmd með aðstoð leitarhunds. Við leitina fundust fíkniefni, bæði kannabisefni og örvandi fíkniefni. Tveir aðilar voru undir átján ára og var þeim, í samstarfi við barnaverndaryfirvöld í Reykjavík, komið í hendur foreldra sinna.

Fram kemur í tilkynning frá lögreglunni á Norðurlandi vestra að í hún hafi í síðustu viku handtekið tvo ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Lögregla minnir á fíkniefnasímann 800-5005.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga