Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 13. maí 2019 - kl. 15:20
Eftirvænting ríkir fyrir komu flóttafólksins

Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag var fjallað um fyrirhugaða komu hátt í fimmtíu sýrlenskra flóttamanna til Hvammstanga og Blönduóss í vikunni. Á báðum stöðunum hefur undirbúningur fyrir móttöku fólksins staðið yfir undanfarnar vikur en fyrri hluti hópsins kemur til Hvammstanga annað kvöld og sá síðari á Blönduós á miðvikudagskvöld. Nýju íbúarnir eru 44 talsins, níu fjölskyldur og á þriðja tug barna, sem dvalið hafa í Líbanon undanfarin ár.

Í fréttum Ríkisútvarpsins var rætt við Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur, verkefnastjóra á vegum Rauða krossins. Hún sagði að móttaka íbúanna hafi krafist mikillar vinnu fjölda sjálfboðaliða sem nú sé á lokametrunum og að allt væri að verða klárt á báðum stöðum. Vinnan hafi t.d. falist í því að taka á móti sendingum frá IKEA, setja matarstell í skápa og þvo þau og koma rúmum saman. „Fólk hefur mikið verið að spreyta sig á IKEA leiðbeiningum og svo hefur líka verið mikið mál að safna húsgögnum frá bæjarbúum og koma þeim fyrir,“ sagði Guðrún Margrét.

Guðrún Margrét sagði einnig að bæjarbúar bíði fólksins með eftirvæntingu. „Fólk stoppar mig allavega úti á götu og spyr hvenær fólkið fari að koma og það er bara almennur spenningur. Krakkarnir í skólanum eru ofboðslega spennt og við, ég og fólkið og verkefnastjórarnir, höfum verið á fullu og túlkar að funda með lykilaðilum innan stofnana. Mér heyrist að það sé mikill spenningur alls staðar og eftirvænting,“ sagði Guðrún Margrét í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins í hádeginu í dag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga