Fréttir | 14. maí 2019 - kl. 14:26
Styrktartónleikar á Skagaströnd

Skátakórinn og kór Hólaneskirkju halda styrktartónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd næstkomandi laugardag, 18. maí klukkan 16:00. Tónleikarnir eru til styrktar sex barna fjölskyldu þar sem faðirinn berst við langvinnan sjúkdóm en hann er félagi í kór Hólaneskirkju. Kórarnir munu syngja lög sameiginlega og í sitthvoru lagi.

Tekið verður á móti frjálsum framlögum en einnig er hægt að leggja inn á eftirfarandi reikning:

- Kennitala: 6501696469 - Reikningur: 161-05-070173.

Kórstjóri kórs Hólaneskirkju er: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir
Kórstjóri Skátakórsins er: Alda Ingibergsdóttir
Undirleikari er: Márton Wirth.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga