Fréttir | 15. maí 2019 - kl. 16:08
Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra

Húnaþing vestra auglýsir á vef sínum eftir umsóknum um styrki úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu. Honum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu. Umsóknir skulu berast eigi síðar en 31. maí næstkomandi.

Áherslur sjóðsins lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra. Styrkir sem veittir eru úr sjóðnum eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent á að úthlutunarreglur, umsóknareyðublað og fleiri gögn er varða Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hunathing.is.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu gudny@hunathing.is. Umsóknir skulu berast til sveitarstjóra Húnaþings vestra á sérstöku umsóknareyðublaði eigi síðar en 31. maí nk.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga