Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:55 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:55 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:55 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:55 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:55 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:55 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Laxveiðitímabilið hefst um næstu mánaðamót og eru veiðimenn orðnir spenntir fyrir komandi laxveiðisumri. Blanda opnar miðvikudaginn 5. júní, fyrst húnvetnskra laxveiðiáa. Aðrar helstu laxveiðiár í húnavatnssýslum opna svo hver á fætur annarri í júní. Líklegt er að Miðfjarðará opni 15. júní, Laxá á Ásum 18. júní og Vatnsdalsá og Víðidalsá 20. júní.
Laxveiði í húnvetnsku laxveiðiánum hefur oft verið betri heldur en í fyrra. Smálaxinn virtist ekki hafa skilað sér í því magni sem menn vonuðust. Alls veiddust 5.919 laxar í þeim sjö ám sem eru á lista Landsambands veiðifélaga yfir 75 aflahæstu laxveiðiár landsins. Árnar eru Blanda, Svartá, Laxá á Ásum, Vatnsdalsá, Víðidalsá, Miðfjarðará og Hrútafjarðará. Laxveiðin í fyrra skilaði 2.395 færri löxum en sumarið 2017 og 4.333 færri löxum en sumarið 2016. Metárið 2015 skiluðu þessar sjö laxveiðiár alls 16.914 löxum á land.
Flestir laxar komu á land í fyrra úr Miðfjarðará eða 2.719 og endaði áin í þriðja sæti yfir aflahæstu ár landsins. Blanda komst ekki inn á topp tíu á listanum eins og hún hefur verið undanfarin ár en hún skilaði 870 löxum að þessu sinni sem er 40% minna en í fyrra þegar 1.433 laxar veiddust í ánni. Laxá á Ásum náði ekki þúsund laxa markinu í fyrra eins og árið þar áður en lokatölur urðu 702 laxar samanborið við 1.108 laxa árið 2017. Víðidalsá endaði í 588 löxum í fyrra en árið 2017 veiddust 781 laxar. Vatnsdalá endaði í 551 löxum en skilaði 714 löxum árið 2017. Hrútafjarðará endaði í 360 löxum miðað við 384 laxa 2017 og Svartá endaði í 129 löxum en árið 2017 veiddust 128 laxar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |