Tilkynningar | 21. maí 2019 - kl. 10:14
Golfkennsla
Frá stjórn GÓS

Golfkennarinn John Garner verður á Blönduósi sunnudaginn 26. maí en þetta er fyrsta heimsókn hans í sumar. Garner kennir börnum 10-15 ára, byrjendum og lengra komnum og er sú kennsla í boði golfklúbbsins. Einnig verður haldið golfleikjanámskeið fyrir 6-9 ára en það verður auglýst nánar síðar.

Einnig býður hann upp á kennslu fyrir fullorðna byrjendur og lengra komna.

Einkatímar – 8.000 kr. Innifalið í gjaldinu er 40 mínútna kennsla ásamt myndbandsgreiningu og leiðsögn.

Paratímar – 6.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 60 mínútur.

Hóptímar (4-6 í hóp) – 5.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 90 mínútur.

Frekari tímasetningar verða auglýstar síðar þegar skráningu er lokið.

Vinsamlegast hafið samband við Jóhönnu á netfangið jgjon@mi.is eða í síma 864 4846 fyrir skráningu og frekari upplýsingar. Skráningu lýkur laugardaginn 25. maí  kl. 12.00.

Stjórn GÓS

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga