Fréttir | 21. maí 2019 - kl. 15:36
Norðurstrandarleið einn besti áfangastaður Evrópu

Arctic Coast Way – Norðurstrandarleið var í dag valið á topp tíu lista yfir þá áfangastaði í Evrópu sem best er að heimsækja, að mati Lonely Planet sem er einn vinsælasti útgefandi ferðahandbóka í heiminum. Leiðin verður formlega opnuð þann 8. júní næstkomandi, en dagskráin verður kynnt síðar, að því er segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands. Um er að ræða 900 kílómetra leið meðfram Norðurströndinni, frá Hvammstanga til Bakkafjarðar.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir allt það starf sem nú þegar hefur verið unnið við að koma Arctic Coast Way af stað,“ segir tilkynningunni og er vitnað í umfjöllun Lonely Planet segir meðal annars að á leiðinni sé að finna allt það besta sem Íslandi hafi að bjóða, en um fáfarnari slóðir. „Frá söguslóðum til miðstöðva hvalaskoðunar, þá býður hvert lítið þorp og bær upp á innsýn inn í lífið á toppi veraldarinnar,“ segir meðal annars í umfjölluninni.

„Með þróun Norðurstrandarleiðar, verður til aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem vilja halda sig utan alfaraleiðar og gera það með því að fara meðfram strandlengju Norðurlands. Samtals er leiðin um 900 kílómetra löng, með 21 bæ eða þorpi og fjórum eyjum sem auðveldlega er að hægt að komast út í með bát eða ferju. Ferðafólk sem fer þessa leið fær tækifæri til að ná betri tengslum við náttúruna, litskrúðugt menningarlíf og einnig hið daglegt amstur þeirra sem búa í nálægt við norðurheimskautsbauginn,“ segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga