Fréttir | 24. maí 2019 - kl. 15:43
Umhverfis- og tiltektardagar á Blönduósi
Tilkynning frá bæjarskrifstofu

Umhverfis- og tiltektardagar verða á Blönduósi frá þriðjudeginum 28. maí til og með fimmtudeginum 30. maí, þar sem bæjabúar og fyrirtæki eru hvött til að fara yfir sitt nánasta umhverfi og hreinsa til. Einnig gott að plokka opin svæði með frjálsri aðferð.

Þjónustumiðstöð getur sótt garðúrgang, samkvæmt beiðni í síma 844-9621, þriðjudaginn 28. maí og miðvikudaginn 29. maí frá kl. 15:00 til kl. 20:00 báða dagana. Gámasvæðið verður opið aukalega fimmtudaginn 30. maí frá kl. 13:00-17:00.

Að lokinni tiltekt mæta bæjarbúar með góða skapið við Félagsheimilið kl. 18:00, fimmtudaginn 30. maí, þar sem sveitarstjórn Blönduósbæjar mun grilla fyrir bæjarbúa.

Tökum höndum saman og gerum bæinn okkar enn snyrtilegri og fallegri.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga