Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi er vinsælt safn.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi er vinsælt safn.
Fréttir | 26. maí 2019 - kl. 10:43
Vinnustofa um markaðsmál safna og setra

Nýverið var haldin vinnustofa á Blönduósi um kynningar og markaðsmál safna, setra. Guðrún Helga Stefánsdóttir, kynningar- og markaðsstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur, stýrði vinnustofunni og hafði aðalframsögu. Að auki greindi Björn H. Reynisson frá Markaðsstofu Norðurlands frá þeim möguleikum í samvinnu safna og setra, sem markaðsstofan telur að geti verið fýsilegir.

Sagt er frá þessu á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Þar kemur fram að nokkuð hafi verið um forföll í röðum safnafólks en að á fundinum hafi komið fram eindreginn áhugi á að þétta raðirnar og auka samskipti þeirra, sem eru í forsvari fyrir söfn og setur svæðisins.  Á Norðurlandi vestra er vel á annan tug safna og setra sem eru hluti af ferðaþjónustunni á svæðinu.

Vel á annan tug safna og setra er á Norðurlandi vestra hluti af ferðaþjónustunni á svæðinu.

Vinnustofan var hluti af Áhersluverkefni sóknaráætlunar 2018-2019 og á að stuðla að styrkingu gæða og þjónustuinnviða í ferðaþjónustu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga