Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Þriðjudagur, 21. mars 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2023
SMÞMFL
2627281234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:00 NA 13 -6°C
Laxárdalsh. 11:00 ANA 14 -4°C
Vatnsskarð 11:00 A 10 -5°C
Þverárfjall 11:00 ANA 13 -6°C
Kjalarnes 11:00 A 12 3°C
Hafnarfjall 11:00 NNA 9 1°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
30. október 2022
Stutt hugleiðing um íslenskuna
Sumum finnst ókurteisi að einhver tali íslensku og jafnvel móðgast fyrir hönd þeirra sem ekki tala hana.
::Lesa

SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
16. mars 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
11. mars 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. mars 2023
43. þáttur. Eftir Jón Torfason
06. mars 2023
Eftir Eyjólf Ármannsson
04. mars 2023
Pistill Péturs Bergþórs Arasonar, sveitarstjóra Húnabyggðar
01. mars 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
26. febrúar 2023
Frá Blönduósi.
Frá Blönduósi.
Fréttir | 05. júní 2019 - kl. 15:03
Fasteignamat á sérbýli hækkar um 16,1% á Blönduósi

Heildarmat fasteigna á Norðurlandi vestra árið 2020 hækkar að meðaltali um 6,7% frá yfirstandandi ári, að því er fram kemur á vef Þjóðskrá Íslands. Mest er hækkunin í Blönduósbæ en þar hækkar matið að meðaltali um 13% og á Skagaströnd um 10,7%. Í Húnaþingi vestra hækkar matið um 9,6%, í Húnavatnshreppi um 8,5% og í Skagabyggð 7,8%. Hækkunin í Skagafirði er 5,5%. Heildarmat fasteigna á landinu öllu hækkar að meðaltali um 6,1%. Fasteignamat á sérbýli á Blönduósi hækkar um 16,1%, sem er með því mesta á landinu.

Landshækkunin nú er mun minni en varð milli áranna 2017 og 2018 þegar matið hækkaði að meðaltali um 12,8%. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar á þessu ári og tekur það gildi 31. desember 2019 og gildir fyrir árið 2020. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2019.

Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 5,3%, um 9,8% á Suðurnesjum, um 10,2% á Vesturlandi, um 6,7% á Norðurlandi vestra, 7,4% á Norðurlandi eystra, 6,7% á Austurlandi og um 8,0% á Suðurlandi. Af einstaka bæjarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest á Akranesi eða um 19,1%, um 14,7% í Vestmannaeyjum og um 14,2% í Suðurnesjabæ.

Fasteignamat íbúðahúsnæðis hækkar að meðaltali um 15,5% í Blönduósbæ og skiptist þannig að sérbýli hækkar um 16,1% og fjölbýli um 9,5%. Meðalhækkun íbúðarhúsnæðis á Skagaströnd er 13,1%, þar af er sérbýli að hækka um 13,7% og fjölbýli um 4,4%. Sjá má nánari sundurliðun á fasteignamatinu eftir tegund húsnæðis hjá sveitarfélögum hér.

Nánari upplýsingar má finna á vef Þjóðskrár Íslands.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið