Norðurstrandarleið formlega opnuð. Ljósm: Aðsend.
Norðurstrandarleið formlega opnuð. Ljósm: Aðsend.
Ljósm: Aðsend.
Ljósm: Aðsend.
Fréttir | 08. júní 2019 - kl. 16:58
Norðurstrandarleið formlega opnuð

Norðurstrandarleið, eða Arctic Coast Way á ensku, var í dag formlega opnuð á Hvammstanga og Bakkafirði. Leiðin hefur verið í þróun í meira en þrjú ár og því afar ánægjulegt að þessum áfanga hafi verið náð í dag, eins og segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands. Sem kunnugt er hefur leiðin þegar vakið mikla athygli erlendis þrátt fyrir að hafa ekki verið formlega opnuð, sem sést best í því að Lonely Planet valdi leiðina sem þriðja besta áfangastað í Evrópu á þessu ári.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra og Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, klipptu á borða við afleggjarann inn á Hvammstanga og opnuðu þannig leiðina formlega. Það sama gerðu Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og Árni Bragi Njálsson, fulltrúi sveitarstjórnar Langanesbyggðar við afleggjarann inn á Bakkafjörð.

Við opnunina voru ný skilti vígð, sem marka Norðurstrandarleið og segja ferðamönnum hvenær þeir ferðast eftir henni. Þessi skilti marka þáttaskil í íslenskri ferðaþjónustu, því í fyrsta sinn eru komin upp skilti með brúnum lit. Sá litur er þekktur erlendis fyrir skilti sem tengjast ferðaþjónustu.

Frá því í morgun hafa verið viðburðir eftir allri Norðurstrandarleið og má þar helst nefna hreinsanir á fjörum, yoga-hugleiðslu, gönguferðir og grillveislur.

Ný heimasíða hefur sömuleiðis verið sett í loftið, en á www.arcticcoastway.is má nú sjá allt það helsta sem hægt er að sjá og gera á leiðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga