Fréttir | 12. júní 2019 - kl. 11:01
Nýtt gagnvirkt þjónustukort

Með nýju gagnvirku þjónustukorti Byggðastofnunar er hægt að fá hraða og einfalda yfirsýn með myndrænum hætti yfir þjónustu hins opinbera og einkaaðila um allt land. Markmiðið með kortinu er að auka og bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þjónustu víðsvegar um landið og auka tækifæri til nýsköpunar og frekari stefnumótunar á sviði byggðamála.

Útgáfa Þjónustukortsins er í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar ásamt því að vera ein af aðgerðum byggðaáætlunar fyrir árin 2018 til 2024. Með kortinu og gögnunum sem það byggir á mun fást hröð og einföld yfirsýn yfir hvaða þjónusta er veitt hvar á landinu.

Byggðastofnun óskar eftir ábendingum, athugasemdum og leiðréttingum við kortið. Hægt er að koma skilaboðum á framfæri á ábendingarhnappi á kortinu. Þá verður stöðug uppfærsla á kortagögnum þar sem þjónusta breytist og færist til, nýir þjónustuþættir bætast við og aðrir hætta. Í þessu ljósi er gott og virkt samstarf við almenning, fyrirtæki og stofnanir lykilatriði í mótun kortsins og unnið verður að því út þetta ár að bæta við upplýsingum um þjónustuþætti inn á kortið.

Upplýsingar um margháttaða þjónustu á vegum ríkisins eru þegar komnar inn á kortið. Einnig upplýsingar um ýmsa þjónustu á vegum sveitarfélaga og einkaaðila. Unnið er að því að skrá fleiri þjónustuþætti sveitarfélaga inn á kortið og verður í framhaldinu lögð áhersla á að skrá þjónustu á vegum einkaaðila.

Kortið má finna á www.þjónustukort.is.

Nánari upplýsingar um þjónustukortið má lesa hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga