Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 13. júní 2019 - kl. 09:05
Hæstiréttur vísar kröfum Blönduósbæjar frá

Hæstiréttur úrskurðaði í gær vísa bæri frá héraðsdómi máli sem Blönduósbær höfðaði á hendur ábúendum á jörðinni Kleifum árið 2017. Forsaga málsins nær til ársins 2009 þegar bærinn rifti byggingabréfi sem gert hafði verið við ábúendur árið 1951 og lýsti því yfir að hann vildi taka jörðina eignarnámi. Hæstiréttur taldi málatilbúnað Blönduósbæjar ekki réttan og kröfurnar of víðtækar og vísaði málinu frá. Bænum var gert að greiða þrjár milljónir í málskostnað.

Á árunum 1932-1939 voru gerir fjórir erfðaleigusamningar til óákveðins tíma og náðu þeir til samtals 7,39 hektara lands. Árið 1951 var gert byggingarbréf við Kristin Magnússon, ábúanda jarðarinnar, þar sem 12 hektarar bættust við jörðina. Greindi bæinn á við afkomendur Kristins um hvort byggingarbréfið frá árinu 1951 hefði leyst erfðaleigusamningana af hólmi, en Hæstiréttur taldi það ekki sannað. Blönduós hafði áður borið sigur úr býtum bæði fyrir héraðsdómi og í Landsrétti, en einn landsréttardómari af þremur, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, skilaði inn sératkvæði, sem byggði meðal annars á því að kröfur Blönduóss væru of víðtækar. Nánar má lesa um dóminn hér.

Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Áslaugu Thorlacius að henni sýnist sem að fullnaðarsigur hafi unnist í þessu máli. Hún segir að það hafi tekið tíma og orku og henni þykir ánægjulegt að því sé nú lokið. Þá er haft eftir Valdimari O. Hermannssyni, sveitarstjóra Blönduósbæjar, að engar ákvarðanir liggi fyrir um hver næstu skref bæjarins verði í málinu. Nú verði dómurinn skoðaður og næst skref ákveðin í rólegheitum.  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga