Fréttir | 13. júní 2019 - kl. 15:13
Hátíðardagskrá á Hvammstanga 17. júní

Hátíðarhöld verða á Hvammstanga á mánudaginn í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní. Búið er að setja saman fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagurinn verður tekinn snemma með dorgveiðikeppni við Norðurbryggju. Klukkan 11 er þjóðhátíðarmessa í Staðarbakkakirkju með söngfólki úr kórum héraðsins. Klukkan 14 hefst skrúðganga frá íþróttarhúsinu að skólanum þar sem nemendur í 9. bekk grunnskólans sjá um hátíðarkaffi og grill og andlitsmálning verður í boði samhliða því.

Hoppkastali verður á svæðinu og leikir fyrir krakkana. Dagskráin mun enda með tónleikum fyrir eldri borgara á sjúkrastofnuninni.

Dagskrána 17. júní á Hvammstanga:

Klukkan 10-12:00
Frítt í sund fyrir alla.

Klukkan 10-11:00
Dorgveiðikeppni við Norðurbryggju, skráning á staðnum frá 9:30. Börn í fylgd forráðamanna og muna að taka stöngina sína með.

Klukkan 11:00
Þjóðhátíðarmessa í Staðarbakkakirkju með söngfólki úr kórum héraðsins. Organisti er Pálína F. Skúladóttir og prestur Sr. Guðni Þór Ólafsson. Á eftir verður kaffi undir kirkjuvegg í boði staðarfólks og eru gestir hvattir til að viðra þjóðbúninginn.

Klukkan 14-16:00
Skrúðganga, leidd af söngfólki héraðsins frá íþróttarhúsi að grunnskólanum á Hvammstanga með viðkomu á sjúkrastofnuninni.  Hátíðarræða og fjallkona við grunnskólann.  Nemendur í 9. bekk verða með hátíðarkaffi og grillsölu sem og öðrum hátíðarvarningi. Hoppkastali og sprell fyrir börnin og nýbúarnir okkar frá Sýrlandi verða með kynningu á sér og sinni menningu.

Klukkan 16-17:00 
Ingimar Oddsson flytur hjartnæmustu lög 20. aldar fyrir eldri-borgara á sjúkrastofnun Hvammstanga.

Krakkar eru hvattir til að finna íslenska fánann heima eða föndra

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga