Fréttir | 15. júní 2019 - kl. 08:35
Kvennahlaupið er í dag
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í dag um land allt. Hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi klukkan 11:00. Í ár eru 30 ár frá fyrsta Kvennahlaupinu. Í tilefni af því er hlaupabolurinn fagur bleikur, sérstakur afmælis Kristall verður í boði, hlaup (kvennahlaup) frá Nóa, Nivea gefur glaðning og sömuleiðis Sjóvá. Blönduósbær býður þátttakendum í sund að hlaupi loknu og Kjörbúðin býður upp á ferska ávexti. Vonandi sjá sem flestar sér fært að mæta og halda upp á 30 ára afmæli Kvennahlaupsins. 
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga