Fréttir | 18. júní 2019 - kl. 13:07
Ný sameiginleg lögreglusamþykkt tekur gildi

Sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélögin sjö á Norðurlandi vestra hefur tekið gildin en vinna við hana hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Hún fjallar meðal annars um eru málefni tengd ferðamönnum s.s. hvar heimilt er að gista í tjöldum og svokölluðum ferðavögnum, þ.e. húsbílum og smærri ferðabílum. Sagt er frá þessu á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra en unnið var uppkast af samþykktinni í samráði við lögreglustjóra sem stjórn SSNV yfirfór og samþykkti.

Í kjölfarið var samþykktin send sveitarfélögunum og lögreglustjóra til athugasemda. Gerðar voru athugasemdir sem tekið var tillit til og samþykktin því næst send sveitarfélögunum að nýju til staðfestingar. Að því loknu var hún send ráðherra til undirritunar og birtingar, sjá hér.

Á vef SSNV segir að nokkuð hafi verið um það rætt að ferðamenn hafi næturstað óleyfilega á ýmsum stöðum í landshlutanum með tilheyrandi óþrifnaði sem af slíku hefur hlotist og stundum ónæði. Staðreyndin sé sú að langflestir ferðamenn vilji breyta rétt og fara að lögum og reglum þar sem þeir koma. Hins vegar hafi það kannski ekki alltaf verið ljóst hvað megi og megi ekki í þessum efnum. Ný sameiginleg lögreglusamþykkt gefi bæði þjónustuaðilum, sveitarfélögum og eftirlitsaðilum tækifæri á að koma þessum samræmdu upplýsingum betur til skila til gesta á svæðinu. Gefi það gestum betur kost á að breyta rétt þegar kemur að vali á náttstað sem svo aftur skili sér í ánægjulegri upplifun.

Fagráð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra sem í sitja fulltrúar ferðamálafélaga svæðisins ásamt fulltrúum SSNV hafa látið gera skilti með leiðbeiningum til ferðamanna sem þegar eru komin upp á nokkra staði sem algengt er að ferðamenn hafi náttstað á en ekki er heimilt skv. lögreglusamþykktinni. Á þeim skiltum er jafnframt vísað á næsta tjaldsvæði ferðamanninum til hægðarauka.  Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá dæmi um slíkt skilti.

Sameiginlega lögreglusamþykktin nær til Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar, Blönduóss, Húnavatnshrepps og Húnaþings vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga