Fréttir | 19. júní 2019 - kl. 14:08
Opið félagsmót Neista og Ísteka

Opið félagsmót Hestamannafélagsins Neista og Ísteka verður haldið á laugardaginn og hefst klukkan 11 í Arnargerði. Keppt verður í A- og B-flokki, B-flokki ungmenna, unglingaflokki, barnaflokki, pollaflokki, tölti, skeiði og brokki. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef þurfa þykir. Sigurvegarar í A- og B-flokki hljóta 25.000 í verðlaunafé en 10.000 í tölti, skeiði og brokki. Boðið verður upp á hádegismat.

Skráningargjald er kr. 2.000 á grein en kr. 1.000 fyrir brokk og skeið og frítt fyrir polla.

Skráning fer fram á sportfengur.com og stendur til 20. júní.

Greiða skal inn á reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda staðfestingu á heneisti@gmail.com.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga