Tilkynningar | 22. júní 2019 - kl. 07:57
Barnabær auglýstir lausar stöður

Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir lausar stöður frá og með 8. ágúst  2019. Á leikskólanum fer fram fjölbreytt og skemmtilegt uppeldisstarf með börnum á aldrinum 8 mánaða til 6 ára. Unnið er samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla 2011 og við leggjum áherslu á að námið fari fram í gegnum leik. Okkar vantar hressa og metnaðarfulla einstaklinga sem hafa áhuga á að vinna gefandi, krefjandi og skemmtilegt starf með börnum.

Einnig auglýsir Barnabær eftir starfskrafti í ræstingar.

Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2019

Frekari upplýsingar gefur Jóhanna G. Jónasdóttir, leikskólastjóri í síma 452 4530 og á netfanginu: johanna@blonduos.is.

Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu leikskólans: http://www.leikskolinn.is/barnabaer.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga