Fréttir | 23. júní 2019 - kl. 22:04
Opna Fiskmarkaðsmótið á Skagaströnd

Opna Fiskmarkaðsmótið, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli á Skagaströnd í gær. Alls voru þátttakendur 26 talsins sem spiluðu 18 holur í afbragðsveðri. Jón Jóhannsson úr Golfklúbbunum ÓS sigraði í punktakeppni með og án forgjafar. Ingibergur Guðmundsson úr Golfklúbbi Skagastrandar var í öðru sæti í punktakeppni með forgjöf og Ólafur Árni Þorbergsson úr Golfklúbbi Sauðárkróks varð í öðru sæti í punktakeppni án forgjafar.

Úrslit urðu sem hér segir:

Punktakeppni með forgjöf:

  1. Jón Jóhannsson GÓS
  2. Ingibergur Guðmundsson GSK
  3. Ásmundur Baldvinsson GSS

Punktakeppni án forgjafar:

  1. Jón Jóhannsson GÓS
  2. Ólafur Árni Þorbergsson GSS
  3. Árný Lilja Árnadóttir GSS
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga