Fréttir | 25. júní 2019 - kl. 14:55
Landsmót STÍ á Blönduósi um helgina

Um helgina fer fram á skotsvæði Skotfélagsins Markviss, Landsmót Skotíþróttasambands Íslands í haglagreininni Skeet. Að sögn forsvarsmanna Markviss hefur skráning á mótið verið með miklum ágætum og stefnir í eitt fjölsóttasta mót sumarsins. Skráðir eru keppendur í flestum ef ekki öllum flokkum og frá átta skotíþróttafélögum víðs vegar af landinu. Keppni hefst klukkan 10 á laugardaginn og stendur fram eftir degi, en skotnar verða þrjár umferðir þann daginn. Keppni líkur á sunnudaginn en þá verða skotnar fjórar til fimm umferðir ásamt úrslitum í karla og kvennaflokki.

Landsmótið er tilvalið tækifæri fyrir áhugafólk um skotfimi að renna við á skotsvæðið og fylgjast með mörgum af bestu skyttum landsins etja kappi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga