Fréttir | 25. júní 2019 - kl. 15:25
Blönduós torfæran á laugardaginn

Þriðja umferðin í Íslandsmótinu í torfæru fer fram á Blönduósi á laugardaginn. Mótið er í umsjón Bílaklúbbs Akureyrar og fer keppni fram í Kleifarhorni. Keppt verður í tveimur flokkum, götubílaflokki og sérútbúnum. Staðan á Íslandsmótinu er æsispennandi en Þór Þormar Pálsson, Geir Evert Grímsson og Haukur Viðar Einarsson eru allir jafnir að stigum í flokki sérútbúinna bíla og verður allt lagt undir í keppninni á Blönduósi á laugardaginn sem hefst klukkan 11.

Aðgangseyrir er 2.000 krónur en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Samkvæmt dagskrá er gert ráð fyrir að verðlaunaafhending fari fram klukkan 17:05.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga