Fréttir | 26. júní 2019 - kl. 12:05
Markaðsstemning á Húnavöku

Á Húnavökuhátíðinni í næsta mánuði verður boðið upp á markaðsstemning á planinu fyrir framan Félagsheimilið á Blönduósi. Nú er hægt að panta borð á markaðinn í gegnum netfangið hunavaka@blonduos.is. Markaðurinn verður laugardaginn 20. júlí milli klukkan 14 og 16. Hann er tilvalinn fyrir þá sem framleiða handverk, vefnaðarvöru, matvöru og gjafavöru eða þá sem eru með frábæra vöru til að selja sem allir vilja kaupa. Þá gæti markaðurinn einnig verið tilvalinn fyrir þá sem eru að taka til fataskápnum eða geymslunni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga