Tilkynningar | 01. júlí 2019 - kl. 21:49
Fimmtudaginn 4. júlí kemur Margeir Vilhjálmsson golfkennaranemi til að fylgja eftir kennslu frá golfdeginum þann 10. júní. Kennslan er í boði golfklúbbsins.
Á fimmtudaginn verður skipt eftir aldri í hópa.
Kl. 16.30. 6 – 10 ára.
Kl. 17.30. 10 – 16 ára.
Kl. 18.30. Fullorðnir.
Í framhaldi verður haldið golfleikjanámskeið fyrir 6 – 10 ára og hefst það miðvikudaginn 10. júlí. Skráning á jgjon@mi.is. Tímasetning auglýst síðar.
Stjórn GÓS hvetur sem flesta til að mæta.