Fréttir | 08. júlí 2019 - kl. 07:12
Héraðsmót USAH á Blönduósvelli

Héraðsmót Ungmennasambands Austur-Húnvetninga, sem jafnframt er Minningarmót um Þorleif Arason, verður haldið á Blönduósvelli dagana 10. og 11. júlí og hefst klukkan 18 báða dagana. Mótið er fyrir einstaklinga 10 ára og eldri, sem skráðir eru í aðildarfélög USAH. Veittur er verðlaunapeningur fyrir efstu þrjú sætin. Stigahæsti einstaklingur í hverjum flokki fær bikar til eignar og auk þess fær stigahæsta félagið farandbikar.

Flokkaskipting: 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára 16-19 ára og 20 ára og eldri.

Keppnisgreinar: 10-15 ára: 60/100m hlaup, 800m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp og spjótkast.

16 árar og eldri: 100m hlaup, 200m hlaup, 800m/1500m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast og þrístökk (20 ára og eldri).

Veitt verða verðlaun fyrir besta afrek kvenna og besta afrek karla í kastgreinum til minningar um Þorleif Arason, slökkviliðsstjóra sem lést þann 11.nóvember 1991. Þorleifur var aðeins 46 ára gamall er hann lést en hann var mikill áhugamaður og þátttakandi í frjálsum íþróttum og voru kastgreinar hans sérgrein. Að auki fær sá sem náði besta afreki á mótinu í kastgreinum farandbikar.

Styrktaraðili mótsins er ÁTAK.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga