Fréttir | 09. júlí 2019 - kl. 10:16
Markviss um víðan völl
Frá Skotfélaginu Markviss

Það hefur verið mikið umleikis hjá Markviss undanfarið. Landsmót STÍ í Skeet var haldið helgina 29.-30. júní á skotæfingasvæði Markviss og nú um helgina gerðu þrír keppendur strandhögg á SÍH Open móti í haglagreinum. Þar bar hæst að Snjólaug M. Jónsdóttir varði titil sinn sem Íslandsmeistari kvenna í Trapp, og Guðmann Jónasson og Brynjar Þ.S. Guðmundsson enduðu í 2. og 4 sæti í A flokki í skeet. Eins gerði Jón B. Kristjánss fína ferð á sumarmót Skotfélags Akureyrar í BR50, 1. sæti í opnum flokki og 2. sæti í sporter flokki.

Framundan er svo þéttskipuð dagskrá móta í kúlugreinum hjá Jónba, m.a. Íslandsmeistaramót í BR50. Rólegra verður yfir haglagreinum fram undir mánaðarmót en þá fer allt á fullt þar aftur.

Árviss opinn dagur hjá Markviss verður á Húnavöku og Höskuldsmót í Skeet fer fram sama dag í beinu framhaldi eins og vant er. Æfingabúðir í bæði hagla og kúlu-greinum verða fyrir keppnisfólk Markviss og aðra áhugasama 27.-30. júlí þar sem Breski þjálfarinn Paul Gerwyn Morris verður við stjórnvölinn. Þess ber líka að geta  að stefnt er að aukinni samvinnu milli Markviss og SIH varðandi mótahald og leiðsögn í Nordisk Trap á komandi misserum.

Eins er uppbygging á svæðinu á fullum skriði undir styrkri stjórn uppbyggingarstjóra og framkvæmdanefndar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga