Fréttir | 17. júlí 2019 - kl. 14:41
Blöndubrúinni lokað tímabundið vegna viðgerða

Brúnni yfir ána Blöndu á Blönduósi, verður lokað tímabundið vegna viðgerða, aðfaranótt föstudagsins 19. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni og sagt er frá á mbl.is. Brúin verður lokuð frá klukkan 01:00 og opnar aftur klukkan 06:30. Starfsmenn Vegagerðarinnar verða staðsettir á gatnamótum Norðurlandsvegar og Svínvetningabrautar bæði við Giljá og Svartá til þess að leiðbeina vegfarendum. Þá verður starfsmaður við gatnamót Norðurlandsvegar og Skagastrandarvegar í sama tilgangi.

Í tilkynningunni kemur fram að neyðarbílum, svo sem sjúkrabílum og bifreiðum lögreglu verði hleypt yfir brúna þrátt fyrir lokunina.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga