Fréttir | 18. júlí 2019 - kl. 12:17
Myndlistasýning í Íþróttamiðstöðinni á Húnavöku

Myndlistasýning verður á Húnavöku en Jóhann Sigurðsson, borinn og barnfæddur Blönduósingur, sýnir þar um 20 myndir sem hann hefur málað á síðastliðnum tveimur árum. Jóhann, sem er matreiðslumeistari að mennt, tók upp á því fyrir nokkru síðan að mála myndir sér til ánægju, eins og hann segir sjálfur frá. Þetta er önnur sýning hans en hún opnar formlega í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi á Húnavöku helgina 19. – 21. júlí.

Jóhann verður sjálfur á staðnum á laugardeginum og vonast til að sjá sem flesta og ræða við gesti um listina og fleira.

Verk eftir Jóhann má sjá á Facebooksíðu hans josig art.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga